Langt fyrir utan ystu skóga New CD

News,fréttir 3 May 2011 | 0 Comments

LFUYS_Album

‎”Langt fyrir utan ystu skóga” is a new CD with Ásgerður Júníusdóttir, mezzo-soprano, singing songs by Gunnar Reynir Sveinsson, Magnús Blöndal Jóhannsson and Björk Guðmundsdóttur. Other musicians are pianist Jónas Sen and the jazz ensemble Sveitin (the Band) – Pétur Grétarsson, Þórður Högnason, Kjartan Valdemarsson, Óskar Guðjónsson.

‎”Langt fyrir utan ystu skóga” er nýr geisladiskur Ásgerðar Júníusdóttur, mezzósópran, með sönglögum eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Magnús Blöndal Jóhannsson og Björk Guðmundsdóttur. Meðleikarar Ásgerðar á disknum eru Jónas Sen sem leikur á slaghörpu og önnur hljómborð, og Sveitin – Pétur Grétarsson, Þórður Högnason, Kjartan Valdemarsson, Óskar Guðjónsson.

You can buy it here

Amiina – Puzzle

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Amiina – Puzzle


Puzzle er önnur breiðskífa amiinu og er hún líkleg til að veita þeim sem á hlýða gleði og ánægjulega upplifun fyrir margbreytilegan og töfrandi hljóðheim sinn. Á Puzzle er meðal annars að finna lögin In the Sun, Ásinn og Over & Again.

Hljómsveitin amiina var stofnuð af fjórum stúlkum rétt fyrir aldamótin, en sem strengjakvartett varð sveitin fræg um allan heim fyrir samvinnu sína við Sigur Rós. Fljótlega var þó amiina farin að þróa sinn eigin hljóm og semja tónlist sem vakti mikla athygli á nýjum og ferskum forsendum.  Fyrsta platan Kurr (2007) seldist vel og fékk góða dóma og það sama ár vann sveitin með hinum stórkostlega Lee Hazlewood. Síðan þá hafa þeir Magnús Trygvason Eliassen og Guðmundur Vignir Karlsson (Kippi Kaninus) gengið til liðs við amiinu og bæta nýjum töktum og straumum við tónlist sveitarinnar. Magnús er á nokkurs vafa í hópi okkar færustu trommuleikara á meðan Kippi Kaninus er göldrótt tækjatröll með undurfallega rödd.  Edda Rún Ólafsdóttir, Hildur Ársælsdóttir, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sumarliðadóttir eru því enn að leggja heiminn að fótum sér en nú með nýja félaga í för.

Puzzle hefur verið tvö ár í vinnslu en platan var tekin upp víða um Reykjavík og í Sundlauginni í Mosfellsbæ þar sem Birgir Jón Birgisson

sá um upptökur ásamt hljóðblöndun.

Independent: **** “Beautiful, delicate stuff”

High Voltage:  “The aura of calm throughout, interspersed with moments of ethereal bliss and stunning crescendos, make this album a winner”

Irish Times: “downright gorgeous”
Mojo: **** “Nordic chamber-folk with delightfully unforced brio”

Ragga – Baby

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Ragga – Baby


Þegar ég held á litlu barni breytist ég.”Ég verð glöð og einlæg og gleymi öðru. “Barnið fær mig til að brosa, tala blítt og sleppa orðum.  Ég man tilfinninguna.”Okkur líður vel og þannig varð þessi tónlist til..  Tónlist fyrir ung börn og aðra einlæga hlustendur
.

Ísgerður – Bara plata

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Ísgerður – Bara plata


Bara Plata
hefur slegið í gegn enda stórskemmtilegur diskur hér á ferð með grípandi og hressum lögum sem öll fjölskyldan getur notið saman! Frumsamið efni eftir Ísgerði og Gnúsa Yones. Ísgerður ferðaðist vítt og breitt um landið síðastliðið sumar að syngja og vakti gríðarlega mikla lukku en login „Út að leika“ og „Njósnafélagið“ hafa orðið sérstaklega vinsæl. Ísgerður vann hug og hjörtu æskunnar sem Snæfríður í Stundinni okkar á sínum tíma og heldur því hér áfram með plötu sinni Bara Plata!

„Þriggja ára stelpan mín syngur og dansar af gleði þegar ég spila BARA plötuna hennar Ísgerðar og ég reyndar líka. Bara plata á heima á hverju barnaheimili.“ „Yngsta dóttir mín hefur haft þennan disk í spilaranum í 6 mánuði, vel gerður og skemmtileg lög“

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir & CAPUT – GRANNMETISLÖG

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir & CAPUT – GRANNMETISLÖG


Grannmetislög
sem inniheldur lög eftir Hauk Tómasson við ljóð Þórarins Eldjárns. Flytjendur eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir ogCaput hópurinn undir stjórn Guðna Franzsonar. Lögin eru samin við ljóð Þórarins úr bókinni Grannmeti og átvextir . Hér er sungið um veruna Veru, Spagettíkarlinn, feita geit og fleira. Haukur Tómasson sýnir á sér nýja hlið í þessum lögum. Þau eru lagræn og auðlærð og ekki síður ætluð til söngs en áheyrnar eingöngu.

Ólöf Arnalds – Innundir Skinni

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Ólöf Arnalds – Innundir Skinni


„Svar Reykjavíkur við Kate Bush” ****Mojo

„Á heildina litið er þetta fín plata hjá Ólöfu. Alvöru plata frá alvöru listamanni.” ****Fréttablaðið

„Skilur eftir sig ljómandi djúp hughrif” ****Metro

*****mbl.is/Morgunblaðið

Innundir skinni er önnur plata Ólafar Arnalds.  Hún inniheldur m.a. lögin Crazy Car, Innundir skinni og Surrender sem er dúett með Björk.  Platan var hljóðrituð í Sundlauginni og er unnin í samvinnu við Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós og Davíð Þór Jónsson.  Platan hefur fengið góða dóma jafnt hér á landi sem og erlendis.

Fyrri sólóplata plata Ólafar, Við og við, vakti líka góð viðbrögð og hlaut m.a. verðlaun sem plata ársins í flokknum ‘ýmis tónlist’ á Íslensku tónlistarverðlaununum. Innundir skinni er engan veginn síðri og eru gagnrýnendur sammála um að Ólöfu hafi tekist að þróa sig áfram sem listamann og lagasmið.

Kalli – Last Train Home

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Kalli – Last Train Home


Kalli (Karl Henry) er fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Tenderfoot.  Last Train Home er önnur sólóplata Kalla.  Hún var tekinum upp í Nashville Tennessee í Bandaríkjunum og ber keim af því.  Kalli fær til liðs við sig virta og heimsþekkta tónlistarmenn á plötunni, m.a. pedal steel gítarleikarann Lloyd Green sem er þekktastur fyrir að hafa spilað á plötum hjá tónlistarmönnum eins og Johnny Cash og Paul McCartney.  Bassaleikarinn Bob Moore sem einnig spilar á plötunni var bassaleikari hjá Elvis Prestley um 11 ára skeið

Fyrsta lagið á plötunni Nothing at All var sérstaklega samið fyrir bíómyndina Óróa og hefur það ásamt titillaginu Last Train Home notið mikilla vinsælda á útvarpsstöðvunum.   Frábær tónlist með einstökum flytjendum.

Söngrödd Kalla er einstök og á hann vafalast með þessari plötu eftir að skipa sér sess á meðal virtustu dægurlagasöngvara þjóðarinnar.

Last train home ********* (9)/10 Andrea Jónsdóttir  – Rás 2Röd
d Kalla ************(12)/10 Andrea Jónsdóttir – Rás 2

Jónsi _ GO

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

„Barnslegri gleði er skipt út fyrir angurværð sem fylgir plötum Sigur Rósar sem skorar á þig að missa ekki fram risa glott á andlitið.” *****The Times

Afburða plata þar sem næstum hver einasti taktur er uppfullur af fegurð.  Hefur ‘pop’ tónlist einhvern tíma hljómað svona dásamlega?” ****1/2 musicOMH

„Jónsi hefur hér gert sína bestu plötu á ferlinum” 9/10 Clash Music

Go er fyrsta sólóplata Jón Þórs Birgissonar, Jónsa söngvara Sigur Rósar.  Platan er unnin af Jónsa, Alex Somers og Peter Katis (The National, Interpol).  Tónlistin er eftir Jónsa en Nico Muhly gerði útsetningarnar fyrir strengi og blásturhljóðfæri auk þess að spila inn á plötuna.  Muhly er þekktur fyrir vinnu sína með Björk, Antony & The Johnsons og fleirum.  Ásláttarleikarinn Samuli Kosminen leikur af snilli á plötunni.  Go er björt og lífleg plata og hin einstaka rödd Jónsa svíkur engann.

Gus Gus – 15 ára

fréttir 4 December 2010 | 0 Comments

Gus Gus – 15 ára

„Þessir tónlistarmenn þekkja hvað góð lög snúast um…” BBC Collective

GusGus fagnar 15 ára afmæli sínu á þessu ári.  Í tilefni af því kom út safnplata með vinsælustu lögum sveitarinnar.  Platan inniheldur 21 eitt lag þar á meðal Polyesterday, Ladyshave, David og Add This Song.  Tvö laganna eru endurgerð, annars vegar er það Barry sem hefur verið endurgert af Gigi Galaxy.  Hins vegar er það lagið Hateful sem er endurgert af Adda & Mayburg.  Einnig eru lög á plötunni sem ekki hafa fengist á geisladisk í þó nokkurn tíma, t.d. Why þar sem Emiliana Torrini syngur.  Öll lögin á plötunni eru útvarpsútgáfur af upprunalegu lögunum.   Þau hafa verið sérstaklega endurklipt fyrir þessa afmælisútgáfu GusGus er þekkt og virt nafn innan elektrónískrar tónlistar í heiminum.  Hljómsveitin hefur gengið í gengum margar mannabreytingar en hér er hægt að hlýða á helstu raddir og hljóð hljómsveitarinnar í gegnum tíðina.  Í dag skipa hljómsveitina Birgir Þórarinsson, Stephan Stephenssen og Daníel Ágúst Haraldsson.

Tónlist Gus Gus er virði hverrar sekúndu.

GusGus spila á Nasa næstkomandi föstudagskvöld

fréttir 15 March 2010 | 0 Comments

GusGus spila á Nasa næstkomandi föstudagskvöld
Nasa er í samræðum gjarnan nefndur heimavöllur hljómsveitarinnar GusGus og hefur þessi fallegi skemmti- og tónleikastaður margoft verið smekkfullur af kampakátum aðdáendum sveitarinnar.    Næstkomandi föstudag verða heimatónleikar GusGus og eru fyrstu tónleikar sveitarinnar í Reykjavík á þessu ári.  Tónleikarnir eru liður í tónleikadagskrá Reykjavík Fashion Festival.
Tónleikadagskrá Reykjavik Fashion Festival, sem fer fram í Reykjavíkurborg dagana 18.-21. mars, verður á NASA við Austurvöll (með nokkrum útúrdúrum). Ásamt GusGus koma fram á hátíðinni er kanadíska tónlistarkonan Peaches. Ýmislegt fleira spennandi er í boði, m.a. chillwave-tvíeykið Air France frá Gautaborg og Retro Stefson, sem eru vön að skapa ægilega stemmningu á NASA.
GusGus gáfu út í fyrra sína sjöundu hljóðversskífu og heitir hún “24/7″ hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis.  Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.

GusGus spila á Nasa næstkomandi föstudagskvöld

Nasa er í samræðum gjarnan nefndur heimavöllur hljómsveitarinnar GusGus og hefur þessi fallegi skemmti- og tónleikastaður margoft verið smekkfullur af kampakátum aðdáendum sveitarinnar.    Næstkomandi föstudag verða heimatónleikar GusGus og eru fyrstu tónleikar sveitarinnar í Reykjavík á þessu ári.  Tónleikarnir eru liður í tónleikadagskrá Reykjavík Fashion Festival.

Tónleikadagskrá Reykjavik Fashion Festival, sem fer fram í Reykjavíkurborg dagana 18.-21. mars, verður á NASA við Austurvöll (með nokkrum útúrdúrum). Ásamt GusGus koma fram á hátíðinni er kanadíska tónlistarkonan Peaches. Ýmislegt fleira spennandi er í boði, m.a. chillwave-tvíeykið Air France frá Gautaborg og Retro Stefson, sem eru vön að skapa ægilega stemmningu á NASA.

GusGus gáfu út í fyrra sína sjöundu hljóðversskífu og heitir hún “24/7″ hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis.  Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.