GusGus spila á Nasa næstkomandi föstudagskvöld
GusGus spila á Nasa næstkomandi föstudagskvöld
Nasa er í samræðum gjarnan nefndur heimavöllur hljómsveitarinnar GusGus og hefur þessi fallegi skemmti- og tónleikastaður margoft verið smekkfullur af kampakátum aðdáendum sveitarinnar. Næstkomandi föstudag verða heimatónleikar GusGus og eru fyrstu tónleikar sveitarinnar í Reykjavík á þessu ári. Tónleikarnir eru liður í tónleikadagskrá Reykjavík Fashion Festival.
Tónleikadagskrá Reykjavik Fashion Festival, sem fer fram í Reykjavíkurborg dagana 18.-21. mars, verður á NASA við Austurvöll (með nokkrum útúrdúrum). Ásamt GusGus koma fram á hátíðinni er kanadíska tónlistarkonan Peaches. Ýmislegt fleira spennandi er í boði, m.a. chillwave-tvíeykið Air France frá Gautaborg og Retro Stefson, sem eru vön að skapa ægilega stemmningu á NASA.
GusGus gáfu út í fyrra sína sjöundu hljóðversskífu og heitir hún “24/7″ hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis. Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.