Hamrahlíðarkórinn: Þorkell
Í tilefni af 70 ára afmæli Þorkells Sigurbjörnssonar, tónskálds, sendir Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur frá sér útgáfuna Þorkell, kórverk eftir tónskáldið, sem flest hver hafa verið samin fyrir kórinn sérstaklega.
Hér fer saman heillandi tónlist við einstakan og hrífandi flutning Hamrahlíðarkórsins.
verð 2499 kr.