
Tríóið TYFT hefur nýverið sent frá sér fjórða geisladisk sinn hjá Skirl Records í New York.
Af því tilefni hafa þeir félagar verið á tónleikaferð um Evrópu undanfarnar tvær vikur. Tónleikaferðini lýkur á Íslandi með tónleikum á Akureyri og í Reykjavík.
Tríóið skipa Hilmar Jensson á gítar, Andrew D’Angelo á saxófón og Jim Black á trommur. Þeir félagar hafa leikið saman í ýmsum sveitum í 15 ár en starfrækt TYFT frá árinu 2000.
Fyrstu 2 diskar þeirra
komu út hjá kanadísku útgáfuni Songlines en síðustu tveir hjá Skirl Records.
Auk Tyftar þá starfa þeir allir með fjölmörgum hljómsveitum og einstaklingum. Hilmar leikur m.a. með AlasNoAxis, Trevor Dunn og Tilraunaeldhúsinu.
Andrew hefur undanfarin ár starfrækt eigin tríó auk þess að leika með Matt Wilson og Human Feel. Jim starfrækir kvartettin AlasNoAxis en leikur einnig með Human Feel, Uri Cain, David Liebman, Dave Douglas o.fl
Tónlist tríósins er að mestu samin af Hilmari og mjög rokkuð þó svo að ræturnar liggi í djassi og spuna.
Tónleikarnir á Akureyri verða á Græna Hattinum fimmtudaginn 21 maí og hefjast kl. 21. Sama dag verða þeir félagar með “master-klass” fyrir nemendur Tónlistarskóla Akureyrar.Tónleikarnir í Reykjavík verða á Kaffi Rosenberg Laugardaginn 23 maí og hefjast kl 21.30.Nýr diskur Tyftar verður til sölu á báðum tónleikum á sérstöku tilboði.
Tags: tyft
Entries (RSS)