
Í haust, nánar tiltekið 3. september næstkomandi, kemur út sjötta hljóðversskífa hljómsveitarinnar og fjöllistahópsins Gusgus. Breiðskífan heitir eins og áður hefur fram komið “24/7″ og kemur hún hjá einu virtasta raftónlistarmerkinu í heiminum í dag, Kompakt. Fyrst stóð til að breiðskífan kæmi út 6. júlí næstkomandi en svo var ákveðið útgáfu yrði frestað um þrjá mánuði.
Fyrsta smáskífan kemur út 22. júní næstkomandi og heitir hún “Add This Song”. Lagið er margrætt og margslungið og var tekið upp ásamt öðrum lögum á “24/7″ í Tankinum við Önundarfjörð og í hljóðveri Gusgus í Reykjavík.
Add This Song mun heyrast á öldum ljósvakanna frá og með 22. júní.
Lagalist smáskífunnar er glæsilegur og lítur svona út:
A1: Add This Song (LOPAZZ & ZAROOK MIX)
A2: Add This Song (GLUTEUS MAXIMUS MIX)
B1: Add This Song (PATRICK CHARDRONNET MIX)
B2: Add This Song (ORIGINAL MIX (12″ EDIT))
A2: Add This Song (GLUTEUS MAXIMUS MIX)
B1: Add This Song (PATRICK CHARDRONNET MIX)
B2: Add This Song (ORIGINAL MIX (12″ EDIT))
Tenglar:
Tags: gus gus
http://www.gusgus.com
http://www.kompakt.fm
http://twitter.com/gusgus_24_7
http://www.facebook.com/profile.php?id=1623677216&ref=like_mf#/pages/GusGus/27595561729?ref=ts
Entries (RSS)