Mýmörg smáfyrirtæki um land allt taka þátt í átaki um kynningu og sölu gjafavöru og góðrar þjónustu. Úrvalið er mikið: Gæðamatvæli, hlýr fatnaður, vandaðir munir, gisting við þjóðveg eða úti í auðn, alúðar bað- og heilsumeðferð fjarri skarkala höfuðborgar, svo fátt eitt sé nefnt. Nógur er fjölbreytileikinn, en til að auka eftirspurn þarf að minna á gróskuna og gæðin.
Með því að gefa ástvinum og vandamönnum trygga ávísun á sérstæða upplifun og innlendan kost, þá er ekki einungis verið að gefa góða íslenska jólagjöf, heldur jafnframt verið að gefa Íslandi sjálfu gjöf; Að gefa fjölbreytilegum sprotavexti áburð er að stuðla að þeirri sjálfbæru þróun efnahags- og atvinnuuppbyggingar landsins sem nú er aðkallandi.
Björk Guðmundsdóttir er í forsvari fyrir átaksverkefnið og er í samvinnu við vef Náttúra.info, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuþróunarfélög landsins, Hönnunarmiðstöðina og smáfyrirtæki um land allt.
Útlit gjafabréfs er hannað af Hrafni Gunnarssyni, grafískum hönnuði, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands.
http://www.nattura.info/islenskgjof

Entries (RSS)