Posted by manny in News, fréttir

Jeff Who’s incredible sophomore album has finally come out and delivers more of the fun pop, rock, and incredible energy that has made Jeff Who? one of Iceland’s best known bands. They invite you to celebrate this release with them this Friday, November 28th at NASA in downtown Reykjavík!
This promises to be the event of the weekend. Don’t believe me? Then check out the new self-titled album at the Smekkleysa webpage and see for yourself!
http://www.smekkleysa.net/shop/jeff-who/jeff-who
Tags:
jeff who?,
nasa,
Webshop
No Comments »
Það styttist nú í tónleika Gus Gus á Nasa. Prímusmótórar sveitarinnar, President Bongo og Biggi Veira, hafa frá áramótum unnið að nýju og rassvöðvastyrkjandi góðmeti fyrir eyru, augu og danslimi. Þetta nýja efni mun svo mynda hryggjarstykki næstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur út snemma á næsta ári hér á landi og útí heimi.
Gus Gus halda sína fyrstu tónleika á árinu, þ.e. á sínum heimavelli næstkomandi laugardag kl. 23:59. Í daglegu tali kannast almenningur við heimavöll sveitarinnar undir nafninu Nasa. Verið er að vinna í því að skipta hljóðkerfi staðarins út fyrir annað svo að hljóðkröfum sveitarinnar verði fullnægt sem og að tónlistin skili sér 100% til aðdáenda.
Tónleikaprógrammið verður að miklu leyti samansett af nýju efni sem að hluta til var flutt á stærstu tónleikum sveitarinnar hér á landi í Laugardalshöll í júní – annað efni er splunkunýtt og hefur aldrei heyrst á tónleikum áður.
Á heimavelli er sveitin aldrei betri og nálægðin í fyrirrúmi. Miðasala er í fullum gangi á miði.is og eru miðar að seljast upp.
Aðgangseyrir er 2500 kr.
Af öðrum tíðindum þá hefur sveitin verið að troða uppá tónlistarhátíðum á borð við Melt, Creamfields, Nu Note Lounge, Spitafield Airwaves o.fl. í Evrópu. Gus Gus hafa verið að deila sviðum með stærstu nöfnunum innan danstónlistarinnar sem og stórum nöfnum á borð við Björk, Hot Chip, Kate Nash, Stereo MC’s, Roisin Murphy, Ladytron o.s.frv.
Nánari upplýsingar:
http://www.gusgus.com
http://www.myspace.com/gusgus
http://www.myspace.com/alltafistudi
http://www.jonjonsson.is/
Tags:
forever,
gus gus,
nasa
No Comments »