Dikta og Jeff Who á Sódómu Reykjavik, föstudag 20. mars

News 19 March 2009 | 0 Comments

Dikta heldur tónleika á föstudaginn kemur, 20. mars, á Sódóma Reykjavík, Tryggvagötu (Gamli Gaukur á Stöng). Dikta mun frumflytja nokkur splunkuný lög auk þess sem þessi gömlu góðu fá að fljóta með.

Einnig munu koma fram Jeff Who? og Sing for me Sandra.

Jeff Who? þarf nú líklegast ekki að kynna fyrir neinum en þeir áttu stórsmellinn Barfly hér um árið. Þeir gáfu út nýja plötu síðasta haust og fékk hún einstaklega góðar viðtökur.

Sing for me Sandra er nýtt íslenskt band sem þykir með efnilegri popp/rokk böndum landsins. Þrátt fyrir að meðlimirnir séu flestir nýfermdir eru þeir geysilega þéttir og eiga mörg frábær lög. Ef þið eigið auka pening væri hægt að fjárfesta í ýmsu heimskulegra en þessum ungu drengjum.

Aðgangseyrir á tónleikana á föstudaginn er aðeins 1000 kr. og hefjast þeir stundvíslega á miðnætti.

NÝTT LAG – LET GO:

Nýtt lag frá Diktu, Let Go, er nú komið út. Let Go er þrusurokkari sem hefur notið mikilla vinsælda á tónleikum Diktu síðustu misserin. Lagið tóku drengirnir í Diktu upp sjálfir en lagið er mixað og masterað af sænska upptökustjóranum Jens Bogren sem er þekktur fyrir störf sín með hljómsveitinni Opeth o.fl.

Let Go er nú komið í hörku útvarpsspilun. Lagið stökk hæst nýrra laga inn á vinsældarlista X-ins 977 og fór beint í 10. sætið. Rás 2 er byrjað að spila lagið en hægt er að fara inn á www.ruv.is/topp30 og kjósa Let Go á Topp30 á Rás 2. Lagið er líka komið í útvarpsspilun í Katar og það verður því fróðlegt að sjá hvort Let Go falli eins vel í kramið hjá útvarpshlustendum í Katar og Breaking the Waves gerði.

Hægt er að hlusta á Let Go á MySpace og Facebook og einnig er hægt að kaupa lagið á www.tonlist.is

Endilega lítið við og hlustið á Let Go á www.myspace.com/dikta

MTV OG NÝ PLATA SEINNA Í ÁR:

MTV í Bandaríkjunum hefur leigt réttinn á nokkrum Dikta lögum en lögin verða notuð í sjónvarpsþáttum sem MTV framleiðir núna fyrir næsta vetur.

Síðustu vikurnar hafa liðsmenn Diktu setið sveittir í hljóðveri við prufuupptökur og forvinnu fyrir næstu plötu sveitarinnar sem væntanleg er síðar á árinu. Ferlið hefur gengið með eindæmum vel og hefur hljómsveitin verið að fæða, klæða og næra ný lög. Þegar búið verður að ala afkvæmin upp verður þeim sleppt út í sitt náttúrulega umhverfi, hljóðhimnur hlustenda.

Endilega fylgist með Diktu og gerist vinir þeirra á Facebook, Myspace og því nýjasta, Twitter.

Dikta mun setja inn myndir og video af upptökum og önnur skemmtilegheit á síðurnar.

Dikta á MySpace: www.myspace.com/dikta

Dikta á Facebook: www.facebook.com/pages/Dikta/16251583139

Dikta á Twitter: www.twitter.com/dikta

Tagged in , ,

Leave a Reply