Gus Gus og Thin Ice frumsýnt

News,fréttir 10 March 2010 | 0 Comments

Nýjasta myndband Gus Gus við Thin Ice er komið til sýninga á netinu og má sjá það hér.  Thin Ice er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, “24/7″. Myndbandið var sýnt sérstökum velunnurum sveitarinnar á kósíkvöldi á Kaffibarnum seint í fyrra og voru undirtektir mjög hlýlegar.
Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni.  Þeir leikstýrðu
einnig myndbandi Gus Gus við Add This Song sem vakti hvarvetna stormandi lukku.     Meðal leikenda eru auk Gus Gus nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar sem tóku fagnandi þátt eftir að hafa móttekið skriflega beiðni leiksstjóra.
Gus Gus fóru í velheppnaða tónleikaferð um Evrópu á haustmánuðum í fyrra en hafa verið undir feld síðustu mánuði.   Þremenningarnir ætla að láta ljós sitt skína á heimavelli sínum, Nasa við Austurvöll, 19. mars næstkomandi og munu koma fram ásamt ungliðunum í Retro Stefson og sænsku chillwave-sveitinni Air France.
24/7 hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis.  Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.

Nýjasta myndband Gus Gus við Thin Ice er komið til sýninga á netinu og má sjá það hér.  Thin Ice er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, “24/7″. Myndbandið var sýnt sérstökum velunnurum sveitarinnar á kósíkvöldi á Kaffibarnum seint í fyrra og voru undirtektir mjög hlýlegar.

Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni.  Þeir leikstýrðu einnig myndbandi Gus Gus við Add This Song sem vakti hvarvetna stormandi lukku.     Meðal leikenda eru auk Gus Gus nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar sem tóku fagnandi þátt eftir að hafa móttekið skriflega beiðni leiksstjóra.

Leave a Reply