Guðný Guðmundsdóttir > Fiðlukonsertar


MP38 $
CD+MP38 $
Fjöldi
# Lag Lengd Verð
1 Fiðlukonsert í h-moll, op. 61 Allegro 18:57 1 $
2 Fiðlukonsert í h-moll, op. 61 Andante 12:44 1 $
3 Fiðlukonsert í h-moll, op. 61 Allegro molto 19:51 1 $
4 Formgerð II 17:35 1 $
5 Fiðlukonsert op.15 Moderato no moto 09:16 1 $
6 Fiðlukonsert op.15 Vivace - Cadenza 09:13 1 $
7 Fiðlukonsert op.15 Passacaglia_ Andante lento 14:27 1 $
8 Fiðlukonsert Lento 08:13 1 $
9 Fiðlukonsert Allegro 13:41 1 $
10 Fiðlukonsert Lento 11:29 1 $

 

Allir fjórir fiðlukonsertarnir á  þessum nýja diski voru frumfluttir hér á landi af Guðnýju.  Tveir af þeim eru eftir íslensk tónskáld og er Guðný sú eina sem hefur flutt þá opinberlega.  Elgar konsertinn var skrifaður á árunum 1907-09 og var frumfluttur af Fritz Kreisler í Queen's Hall í London árið 1910. Elgar tjáði sig sjálfur um konsertinn: „Hann er góður! Ógurlega mikið af tilfinningum, of mikið, en ég er hæstánægður með hann engu að síður.”

Herbert H. Ágústsson var fæddur í Graz í Austurríki árið 1926.  Formgerð II var samið á árunum 1978-79 og er eina verk hans fyrir einleiksfiðlu.  Það var frumflutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 1981.  Nafn verksins er góð lýsing á verkinu, en Herbert sagði sjálfur um verkið: „Formgerð táknar; smíði, mót, gerð eða byggingu. [...]  Formgerð II, Quasi adagio e rubato.  Úr litlu frumi myndast smám saman í byrjun verksins mjög frjálst impróvíserandi stef.  Sex tilbrigði, kadensa og kódi fylgja, en verkið endar eins og það upphófst.”

Benjamin Britten  skrifaði fiðlukonsertinn sinn aðeins 25 ára að aldri og var það fyrsta verkið sem hann lauk við í Bandaríkjunum, þangað sem hann flúði þangað árið 1939 í upphafi síðari heimstyrjaldarinnar.  Í bréfi Brittens til útgefanda síns Ralph Hawks segir Britten:  „Þetta er án efa besta verk mitt hingað til.  Það er fremur alvarlegt, er ég hræddur um –en það hefur samt nokkrar góðar laglínur!”

Páll Pálsson hóf feril sinn eins og Herbert í Graz í Austurríki en var ráðinn til Íslands 1949.  Hann starfaði lengi með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hljóðfæraleikari, hljómsveitarstjóri og tónskáld.  Fiðlukonsertinn var saminn 1997-98 og er tileinkaður Guðnýju. Hún frumflutti konsertinn í maí 1998.  Þriðji kaflinn var saminn í minningu Ruth Hermanns fiðluleikara en hún lest um það sama leyti og konsertinn var í skrifum.  

Póstburðargjald er innfalið í verði.


  • Fiðlukonsertar
    Útgáfuár: 2010
Bæti "" í körfuna.
Körfuna má ávallt skoða með því að smella á körfuna í valmyndinni.
Í lagiSkoða körfuGreiða

Um söluaðila * Skilmálar * Persónuverndarstefna * Hafa samband