
| # | Lag | Lengd | Verð | |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Rafskinna > Fiskur (#1) | 00:00 | 1 $ | |
Rafskinna er sjónrit hugsað sem
1. vettvangur fyrir sjónlistir og annað sjónrænt efni á Íslandi
2. hvati til framleiðslu á slíku efni
3. kynning á mynd- og tónlistarmönnum, hönnuðum, arkitektum, skáldum og öðrum skapandi mönnum, íslenskum og erlendum, gömlum og nýjum, körlum og konum, jafnt innan lands sem utan. Þess vegna er hún bæði í senn á ylhýrri íslensku og enskunni júnívörsal.
Rafskinna einskorða sig ekki við t.d. stuttmyndir eða tónlistamyndbönd en heldur utan um allt sem er rafrænt og hreyfist, auk þess sem pláss gefst í prentefninu fyrir texta, ljósmyndir og teikningar. Í Rafskinnu má finna efni sem hefur fram að útgáfu ýmist ekki verið aðgengilegt, ekki sést lengi eða einungis birst á Netinu í ófullnægjandi gæðum. Til viðbótar við birtingar á áður framleiddu en sjaldséðu eða ill-fáanlegu efni framleiðir Rafskinna og lætur framleiða töluvert af nýju efni fyrir hvert tölublað sem gefur því vikt í samtímanum auk þess að auka á heimildagildi þess.
Hið gamla fær engu að síður líka sinn sess, enda ekkert nýtt undir sólinni. í hverju tölublaði er dregið fram efni sem komið er til ára sinna og hefur til brunns að bera eitthvað af eftirfarandi:
1. Hitti í mark á sínum tíma en er fallið í gleymsku.
2. Á erindi við nútímann.
3. Er forvitnilegt en ófáanlegt
4. Af einhverjum ástæðum ekki hlotið þá athygli sem Rafskinna telur það eiga skylda.
Rafskinna leggur mikið upp úr umbúðunum svo þar fær nýstárleg hönnun að njóta sín til fulls í áþreifanlegu formi. Nýr hönnuður er sjanghæaður til leiks fyrir hvert tölublað Rafskinnu, en hún kemur út þrisvar á ári. DVD diskur, veggmynd, prentefni og breytilegt fylgiefni er pakkað í möppu sem er 20mm x 270mm x 270mm, svo hönnuðir fái gott svigrúm fyrir sitt verk, en ókosturinn er að hefðbundin bréfalúga er skitnir 25mm x 260mm sem þýðir að þeir sem fá sína Rafskinnu í áskrift eða panta hana með öðrum hætti mega valhoppa niður á pósthús í spreng, vitandi að þar bíður þeirra snilld í yfirstærð.

Um söluaðila * Skilmálar * Persónuverndarstefna * Hafa samband